Þú hefur nú þegar lokið % af þessari könnun.
Caution: JavaScript execution is disabled in your browser or for this website. You may not be able to answer all questions in this survey. Please, verify your browser parameters.

DIGI-Rangeland - Spurningakönnun til notenda og umsjónarmanna lands, annarra en bænda, um væntingar og viðhorf til stafrænna tæknilausna varðandi búfjárbeit á úthaga

Kæri þátttakandi,

Þér er boðið að taka þátt í þessari könnun fyrir DIGI-Rangeland, verkefni þar sem kannað er hvernig stafræn tækni og nýsköpun (DTI)Dæmi um DTI í samhengi DIGI-Rangeland verkefnisins getur falið í sér að rekja ferðir búfjár með GPS-staðsetningarbúnaði, rafræna auðkenningu búfjár (eyrnamerki), skynjara og mælitæki til að fylgjast með beitilandi og veðri, smáforrit fyrir farsíma til að birta mælingar og deila upplýsingum, dróna og fjarkönnun, sýndargirðingar, eftirlitsmyndavélar, sjálfvirkan fóðrunarbúnað, vigtun og flokkun búfjár, hjarðforrit, viðvörunar- og samræmingarkerfi. Þú þarft ekki að þekkja eða hafa notað þennan búnað og tækni til að geta svarað könnuninni.getur stutt við sjálfbærni og skipulag varðandi nýtingu úthagasvæða. Úthagasvæði eru landsvæði með náttúrulegum gróðri sem eru notuð á vissum árstímum fyrir búfjárbeit. Þessi svæði eru á fjöllum og heiðum, á heimalöndum og afréttum. Á þessum svæðum er víða til staðar önnur landnýting en til beitar, eins og útivist, skógrækt, náttúruvernd og ferðaþjónusta. Í því samhengi sem DIGI-Rangeland verkefnið nær til, vísar stafræn tækni og nýsköpun (e. Digital technologies and Innovations=DTI) til tækjabúnaðar, kerfa og vinnuaðferða sem byggja á stafrænni tækni og geta stutt við stjórnun á landnýtingu og meðferð búfjár, til dæmis með betra upplýsingaflæði, eftirliti, samhæfingu og ákvarðanatöku. Tæknin getur verið allt frá einföldum farsímaforritum til flóknari stafrænna kerfa og tækja sem byggja á skynjurum.

Þessi könnun beinist að sjónarmiðum landnotenda og hagsmunaaðila annarra en þeirra sem stunda eða koma með beinum hætti að búskap er byggir á úthagabeit. Sérstaklega samtökum, stofnunum og fyrirtækjum sem koma að stjórnun landnýtingar og eftirliti með vistkerfum, náttúruvernd, ferðaþjónustu, útivist (hlaupum, gönguferðum, klifri, hjólreiðum o.s.frv.), auðlindastjórnun, samfélagsþróun, menningu og arfleifð, fræðslu- og þjálfunarstarfsemi sem tengist notkun beitilands (t.d. umhverfisfræðsla, vettvangsnámskeið, útikennsla) eða landnýtingu almennt. Könnunin miðar að því að skilja betur samspil beitar og annarrar landnotkunar (svo sem ferðaþjónustu, útivistar, skógræktar, náttúruverndar, innviðauppbyggingar eða framleiðslu endurnýjanlegrar orku). Jafnframt að skynja og skilja áskoranir í þessu sambandi og hvar upplýsingar og stafræn verkfæri gætu hjálpað til við að bæta samræmingu og sambúð landnýtingar af mismunandi tagi, sem og hvar lausnir sem ekki eru stafrænar gætu verið meira viðeigandi

Þátttaka í könnuninni er valfrjáls og tekur um það bil 15-20 mínútur. Stjörnumerktum spurningum (*) þarf að svara til að halda áfram með könnunina. Niðurstöður verða eingöngu notaðar til rannsókna, lærdóms og umræðu innan DIGI-Rangeland verkefnisins.